NÝJUNG fyrir íslenska fasteignaeigendur á Spáni
- Við auglýsum eignina þína á Spáni FRÍTT –
- Ef við leigjum út eignina þína á Spáni þá er þóknun okkar aðeins 8
evrur fyrir hvern bókaðan dag -
Heimasíðan www.costablanca.is býður nú öllum þeim sem eiga fasteignir á Spáni og vilja ná inn einhverjum leigutekjum á fasteignir sínar að auglýsa fasteignir sínar til leigu í gegnum leiguíbúðarvef costablanca.is sbr. www.costablanca.is/leiguibudir
Ferlið er einfalt og skilvirkt:
1. Þú sendir okkur lýsingu á eigninni og myndir á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.

2. Þú segir okkur hvaða vikur við megum leigja út eignina
3. Við skráum eignina inn á leiguíbúðarvefinn
4. Við svörum öllum fyrirspurnum um eignina
5. Við áframsendum til þín beiðni um bókun þegar hún berst
6. Þú samþykkir bókun og við sendum bókunarstaðfestingu til leigjandans
7. Þú færð staðfestingargjaldið greitt beint frá leigjandanum inn á þinn bankareikning.
8. Við fáum staðfestingu um greiðsluna og göngum frá formlegum leigusamningi við leigjandann.
9. Þú færð leiguna að fullu greidda inn á þinn bankareikning.
10. Við sendum á þig uppgjör á 2ja mánaðar fresti varðandi leiguþóknun
Í þóknun fyrir framangreint leiguferli greiðir eigandi fasteignar aðeins 8 evrur fyrir hvern bókaðan dag í útvegaðri leigu - ekkert er greitt ef ekkert leigist.
Dæmi: Costablanca.is bókar eina viku - 56 evrur í þóknun ( 8 x 7)
Costablanca.is bókar tvær vikur - 112 evrur í þóknun ( 8 x 14 )
Costablanca.is bókar þrjár vikur – 168 evrur í þóknun ( 8 x 21 )
Frekari upplýsingar veittar í gegnum
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
eða 0034-663326472
Nánari útlistun:
Fasteignaeigandinn á Spáni ákveður að auglýsa eignina sína til leigu á leiguvef costablanca.is og gerir samning við vefinn um slíka þjónustua. Eigandinn sendir því næst lýsingu á eigninni og myndir ásamt upplýsingum um verð og annað það sem væntanlegum leigjanda er nauðsynlegt að vita. Starfsmenn costablanca.is skrá eignina inn á leiguíbúðarvefinn halda úti öflugri svörunarþjónustu þar sem öllum fyrirspurnum er svarað. Fasteignaeigandinn segir hvaða vikur má leigja og þegar bókun berst er bókunin áframsend frá costablanca.is ásamt grunn upplýsingum um væntanlegan leigjanda. Ef fasteignaeigandinn samþykkir bókunina sendir costablanca.is út bókunarstaðfestingu til leigjandans þar sem koma m.a. greiðsluupplýsingar á staðfestingargjaldi en allir leigjendur þurfa að greiða óafturkræft staðfestingargjald sem nemur 20-30% af heildar leiguverði. Staðfestingargjaldið þarf leigjandinn að greiða innan 3ja daga frá bókun og það beint inn á reikning fasteignaeigandans. Þegar starfsmanni costablanca.is hefur borist staðfesting á greiðslunni er sendur út formlegur leigusamningur til leigjandans þar sem kveðið er m.a. á um greiðslu á eftirstöðvum, gestalisti (allar upplýsingar – nafn og aldur – á öllum þeim sem verða í íbúðinni), tryggingar ofl.
Ef fasteignaeigandinn hefur engann fulltrúa á sínum vegum á Spáni til að taka á móti leigjanda er unnt að kaupa þá þjónustu af costablanca.is þar sem íslenskur húsasmíðameistari búsettur á Spáni tekur að sér slíka umsjón á okkar vegum gegn lyklagjaldi úr hendi eiganda. Frekari upplýsingar á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Lyklagjaldið er frá 40 evrum (fjárhæð eftir staðsetningu) og er innifalið í því gjaldi að starfsmaður okkar tekur á móti leigjandunum við eignina, afhendir honum lyklana jafnframt því sem farið er yfir helstu umgengisreglur með leigjandum og „kennt“ er á eignina. Einnig er innifalið í lyklagjaldinu að taka á móti tryggingafé fyrir hönd eiganda ef svo hefur verið umsamið við komu og koma aftur við brottför til að taka við lyklum og afhenda leigjandanum tryggingarféð ef eignin er óskemmd.
Raunhæft dæmi:
Til frekari útkýringar á öllum þessum kostnaði fyrir eigandann verður tekið dæmi um eina íbúð á Torreviejasvæðinu sem er leigð út í 2 vikur nú í sumar en leiguverðið er 480 evrur fyrir utan þrif eða samtals 960 evrur fyrir 2 vikur. Þóknun þess sem útvegar leiguna er mishá eða eftir því hver á í hlut.
Þóknun fasteigna- og leigumiðlara á Torreviejasvæðinu:
Oft í kringum 20% þóknun vegna leiguumsjónar - 960 x 20% = 192 evrur þóknun leigumiðlarans
Sumir leigumiðlarar taka fastan þóknun óháð leiguverðið eða allt upp í 120 evrur fyrir vikuleigu sem gera samtals 240 evrur fyrir 2 vikur eða 25% af umsaminni leigu til eigandans.
Þóknun www.costablanca.is fyrir bókaða leigu í gegnum vefinn.
Samtals 2 vikur bókaðar eða 14 dagar. Þóknun 8 evrur dagurinn eða samtals 8 x 14 = 112 evrur.
Ef fasteignaeigandinn óskar eftir því að starfsmaður costablanca.is afhendi leigjanda lykla við komu þá greiðist í lyklagjald sem er frá 40 evrur.
Hálfs mánaðar leiga í gegnum costablanca.is kostar skv. framangreindu dæmi 152 evrur eða aðeins um 15% af umsaminni leigu til eigandans.
Afhverju leiguíbúðarvefur costablanca.is ?
Við viljum gefa þér nokkrar góðar ástæður fyrir því að auglýsa fasteign þín á Spáni til leigu á costablanca.is
1. FRÍTT að auglýsa meðan eignin leigist ekki
2. Ódýrasti kosturinn ef eignin leigist
3. Öll heimasíðugerð og kostnaðarsöm markaðssetning á eign óþarfi
4. Auglýsir inn á vinsælasta spánarvefnum – nánar hér
5. Allur frágangur leigu formlegur og skriflegur
6. Allar leigugreiðslur beint inn á bankareikning fasteignaeigandans
7. Íslenskir fagaðilar búsettir á svæðinu koma að leiguferlinu þ.á.m. íslenskur lögfræðingur og íslenskur húsasmíðameistari.
8. Unnt að kaupa aukna þjónustu varðandi fasteignina
9. Unnt að auglýsa eigina á erlendum leigusíðum.
Sem fyrr getur fasteignaeigandinn valið þá leið að kaupa áskrift að leigukerfinu og stjórnað öllum aðgerðum sjálfur.
- Vertu þinn eiginn leigumiðlari og stjórnaðu öllu sjálfur -
Stutt kynning:
Í fyrsta skipti geta eigendur eða umsjónaraðilar fasteigna á Costa Blanca svæðinu séð um að leigja sjálfir út eignir milliliðalaust og án verulegs kostnaðar sem fylgir oft við leigu í gegnum leigumiðlanir eða fasteignasölur, við heimasíðugerð eða aðra nauðsynlega markaðskynningu á eign. Þessi nýja leigumiðlun virkar þannig að leigusalinn kaupir mánaðarlega áskrift að leiguíbúðarforriti heimasíðunnar Costablanca.is og stjórnar alfarið sjálfur öllum aðgerðum. Leigusalinn fær fullan aðgang að kerfinu og sér um að slá inn upplýsingar um eign, setja inn myndir, svara fyrirspurnum og bóka leigu í bókunardagatal. Ennfremur fær leigusalinn notkunarrétt á stöðluðu bókunareyðublaði og lögformlegum leigusamningi til að notast við þegar gengið er frá leigu. Einnig getur leigusalinn samið við www.costablanca.is um ýmsa aðra þjónustu sem miða m.a. að því að auka líkurnar á hámarksnýtingu á leigu. Heimasíðan costablanca.is mun ávallt nota ákveðið hlutfall áskriftargjaldsins til frekari auglýsingar og markaðssetningar á leiguíbúðunum sem verða í gagnagrunninum.
Lýsing: Fasteignaeigandi á Spáni kaupir áskrift að leiguíbúðarforriti www.costablanca.is og fær fullan aðgang að kerfinu. Eigandinn er þar með orðinn eiginn leigumiðlari og sér sjálfur um að slá inn allar nauðsynlegar upplýsingar um eign ásamt innsetningu á myndum, svara fyrirspurnum, bóka í bókunardagatal ofl.
Verð fyrir innskráningu á hverri fasteign 35 evrur á mán miðað við 6 mán binditíma.
Verð fyrir innskráningu á hverri fasteign 30 evrur á mán miðað við 12 mán binditíma.
Unnt að greiða annað hvort inn á bankareikning á Íslandi eða Spáni.
Vinsamlegast leitið tilboða og frekari upplýsinga á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Leiðbeiningar við innskráningu sem eiginn leigumiðlari:
Innskráning sem nýr notandi:
Til vinstri á heimasíðunni eru 2 hvítir kassar undir “Innskráning í leigubúðir”. Fyrir neðan þá stendur “Óskráður notandi ?” “Smelltu hér”. Þér smellið á þann flipa og við það birtist gluggi sem ber heitið “Nýskráning” og þarf að fylla alla reiti. Þegar því er lokið er smellt á “Senda skráningu”. Starfsmenn www.costablanca.is hafa síðan samband við þig vegna greiðslutilhögunar á áskriftargjaldi og að aflokinni greiðslu er opnað fyrir allan aðgang að leiguíbúðarkerfinu.
Innskráning og aðgangsheimild:
Fyllið út hvítu kassana með notandanafni og leyniorði og smellið á “Innskráning”. Við það opnast allur aðgangur að leiguíbúðarvefnum og unnt að fara setja inn allar upplýsingar um eign á leiguíbúðarvefinn. Þegar innskráningu er lokið birtist textinn “Halló xxxx” og hvítu kassarnir hverfa. Einnig birtast við innskráninguna neðst til vinstri undir liðnum “Undirsíða eiganda” fjórar línur. Þessar línur eru allar mikilvægar aðgerðir þegar unnið er á leiguíbúðarvefnum. Þessar aðgerðir eru “Sjá mínar eignir” - “Stjórna mínum eignum” – “Mínar upplýsingar” og “Setja inn eign”. Nú verða gerð ítarlegri skil á þessum aðgerðum.
Aðgerðin “Sjá mínar eignir”:
Þegar smellt er á þessa aðgerð birtist listi yfir þær eignir sem innskráður notandi er skráður með á sitt notandanafn. Þarf lítið að nota.
Aðgerðin “Stjórna mínum eignum”:
Þegar smellt er á þessa aðgerð birtist annars konar listi yfir þær eignir sem innskráður notandi er skráður með á sitt notandanafn. Þessi aðgerð er nauðsynleg ef notandi vill breyta einhverju í lýsingu, bæta inn eða taka út myndir, bóka í bókunardagatal ofl. Á þessum lista sést m.a. hvort eignin er birt á vefnum (merkt með rauðu X ef ekki birt) og einnig hversu oft eignin hefur verið skoðuð á vefnum. Þetta er sú aðgerð sem er hvað oftast notuð. Sjá hér að neðan leiðbeiningar um notkun á bókunardagatali, innsetningu á myndum, birting eignar ofl. undir aðgerðinni “Setja inn eign”.
Aðgerðin “Mínar upplýsinar”:
Þegar smellt er á þessa aðgerð birtast upplýsingar um notandann. Lítið sem ekkert notað.
Aðgerðin “Setja inn eign”
Þegar smellt er á þessa aðgerð birtast felligluggar sem þarf að fylla út til að innskrá fasteign inn á leiguíbúðarvefinn. Þetta er aðgerð sem er notuð þegar ný eign er skráð. Þessir felligluggar eru “Helstu upplýs” – “Meiri upplýs.” - “Útgefið” – “Leigudagatal”. Einnig birtist uppi til hægri mynd af disklingi og rauður texti þar sem stendur “vista og setja inn myndir”.
- Felliglugginn “Helstu upplýs”: Hér þarf að fylla inn í alla reiti. Fylla þarf út staðsetingu eignar en þessi texti birtist í hausnum yfir eigninni í auglýsingunni. Fylla þarf út tegund eignar en nokkrir valmöguleikar eru gefni. Ef notandi vill að eignin birtist á forsíðu þarf að haka við reitinn “Birta á forsíðu”. Í stóra reitnum “Megin texti” þarf að setja inn alla lýsingu á eigninni. Ekki þarf að fylla út í reitina “Aðrar upplýs” eða “Minnispunktar”.
- Felliglugginn “Meiri upplýs”: Hér þarf að fylla inn alla reiti við hvern reit eru gefnir nokkrir valmöguleikar. Neðst er reiturinn “Annað”en þar er möguleiki að slá inn frekari upplýsingum ef leigusalinn vill koma einhverju því að sem ekki er gefinn sem valmöguleiki að ofan. Áður en haldið er lengra og nokkuð gert hér er gott að smella á disklinginn efsti til hægri “Vista og setja inn myndir”en þá vistast allt það sem þegar er búið að slá inn
- Felliglugginn “Myndir”: Hér eru allar myndir settar inn og það er nauðsynlegt að nota eingöngu íslenska stafi við heiti myndar og hafa heiti myndar í einu orði. Einnig má myndin ekki vera of stór. Ef vandræði reynast við innsetningu á myndum má senda myndirnar í tölvupósti á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
og starfsmaður costablanca.is setur myndirnar inn. Þegar mynd er sett inn er valið fyrst “Browse” þar sem myndin er valin. Síðan er myndinn gefið nafn í reitnum “Titill” en nafnið sést á vefnum og muna ekki íslenska stafi eða lagnar setningar. Síðan er smellt á “Upphlaða mynd” og myndin hleðst inni. Ekki þarf að fylla út í reitinn “Lýsing”. Unnt er að hlaða inn ótakmarkað magn mynda. Þegar þessu er lokið smella á myndina af disklinginum uppi til hægri og þá vistast öll gögn. Ef stóra rauða X er valið er farið úr forritinu án þess að gögn og myndir vistast. Muna að það getur verið nauðsynlegt að nota færsluslánna til hægri og niðri til að færa til þann glugga sem unnið er í.
- Felliglugginn “Útgefið”: Hér þarf lítið annað að gera en að velja í reitnum “Staða” að birta. Þetta er nauðsynlegt svo eignin birtist á netinu. Ef einhvers staðar sést rautt X á listanum yfir eignina þá hefur gleymst að haka við þennan reit að birta eign.
- Felliglugginn “Leigudagatal”: Hér er bókunardagatal þar sem unnt er að stjórna bókunum. Muna að það getur verið nauðsynlegt að nota færsluslánna til hægri og niðri til að færa til þann glugga sem unnið er í. Fyrst þarf að velja árið en það er gert með því að smella á örvarnar sitt hvoru megin við ártalið sem birtist efst. Þegar árið er valið er unnt að smella á mánuðinn og þá birtast allir dagarnir þar sem unnt er á hverjum degi að velja bókunarstöðuna þ.e.a.s. hvort eign er bókuð – laus – eða samkomulag. Þegar þetta hefur allt verið gert þarf að velja “Apply Changes”
Vinsamlegast sendið fyrirspurn á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
ef erfiðlega gengur að setja inn upplýsingar eða myndir og starfsmaður www.costablanca.is verður þér innan handar.
Notkunarskilmálar og ábyrgðaryfirlýsing ef auglýst sem eiginn leigumiðlari:
Allir þeir fasteignaeigendur og umsjónaraðilar fasteigna sem vilja skrá fasteign á Spáni til leigu inn á leiguíbúðarvef www.costablanca.is skulu hlýta í einum og öllu neðangreindum notkunarskilmálum.
- Allar upplýsingar um fasteign sem auglýst er til leigu skulu vera rétt fram settar og á engan hátt skal leyna atriðum sem geta mögulega skipt leigjandann máli.
- Allur texti í lýsingu á fasteign sé skýr og skiljanlegur og varast alla misritun. Einnig er óheimilt að vera með tilvísun inn á aðrar heimasíður inni í texta um eign.
- Allar myndir af fasteign og nánasta umhverfi skulu vera réttar en ekki af svipaðri eign eða svipuðu umhverfi.
- Miða skal við að öll uppgefin leiguverð á fasteign skulu vera rétt fram sett og sýnileg gagnvart leigjandanum. Taka skal sérstaklega fram í lýsingu eignar ef einhver kostnaður eins og þrif eignar eru ekki innifalin í uppgefnu leiguverði.
- Eigandi eða umsjónaraðili fasteignar skal leitast við að svara öllum fyrirspurnum varðandi fasteign hið allra fyrsta. Ef fyrirspurn hefur ekki verið svarað innan 2ja sólarhringa hafa forsvarsmenn www.costablanca.is heimild til að aðstoða áhugasaman leigjanda, ef þess er óskað, til að hafa samband við eiganda og ítreka svörun á fyrirspurn.
- Eigandi eða umsjónaraðili fasteignar skal leitast við eftir fremsta megni að hafa bókunardagatalið eins vel uppfært og kostur er og að móttaka ekki bókun nema eignin sé örugglega laus.
Um leið og fasteignaeigandi eða umsjónaraðili fasteignar hefur skráð sig sem notanda og greitt fyrir aðgangsheimild að leiguíbúðarvefnum er litið svo á að ofangreindir notkunarskilmálar hafa verið samþykktir. Í beinu framhaldi lýsa forsvarsmenn heimasíðunnar www.costablanca.is því yfir að:
- Að allar eignir inni á leiguíbúðarvefnum verði sjáanlegar inni á helstu leitarvélum.
- Ákveðnu hlutfalli af áskriftargjaldinu verði varið til frekari auglýsingar og markaðskynningar á leiguíbúðarvefnum.
- Að útlit leiguíbúðarvefsins sé ávallt smekklega fram sett og notendavænt.
- Forsvarsmenn www.costablanca.is bera ekki ábyrgð á því að eigandi eða umsjónaraðili fasteignar hafi misst viðskipti
- Forsvarsmenn www.costablanca.is bera ekki á ábyrgð á því að einhverjar upplýsingar um fasteign eða myndir vanti eða að einhverjar upplýsingar tilgreindar um eign séu rangar eða misritaðar.
- Forsvarsmenn www.costablanca.is bera ekki ábyrgð á þeim leiguskilmálum eða leigugreiðslum sem samið hefur verið um á milli aðila.
- Forsvarsmenn www.costablanca.is hafa heimild ritskoða allt efni inni á leiguíbúðarvefnum og eyða út myndum eða texta inni ef þess reynist þörf.
Ef frekari spurningar vakna vinsamlegast sendið fyrirspurn á
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
|