|
Veitingastaðurinn Caruso á Spáni |
|
|
|
|
Íslenskir matgæðingar ættu allir að þekkja hinn margrómaða ítalska veitingastað Caruso á horni Bankastrætis og Þingholtsstrætis. Í vor opnuðu sömu eigendur í samstarfi við íslenska og spænska aðila á Torreviejasvæðinu svipaðan veitingarstað í Torreviejaborg - sjá nánar hér frétt á visir.is
Veitingastaður Caruso í Torrevieja er allur innréttaður með svipuðu yfirbragði og á Íslandi en stóri munurinn er helst hinn stórkostlegi garður fyrir framan veitingastaðinn þar sem unnt er að sitja undir berum himni við útiarineld og kertaljós og börnin geta farið í leiktæki í garðinum. Einnig hefur garðurinn heldur betur slegið í gegn en staðurinn hefur boðið upp á lifandi tónlist í garðinu og má nefna að Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson hafa báðir haldið tónleika í garðinum.
Íslenskur yfirmatreiðslumaður staðarins, Ólafur Ragnar Eyvindsson, sér til þess að metnaður sé lagður í matargerðina en hann hefur marga ára reynslu af matseðlinum á Caruso á Íslandi. Hrósa ber Carusomönnum fyrir stórbrotin og eftirtektarverðan matseðil sem sjá má nánar hér.
Einnig hefur Caruso tekið upp á því að vera með grilldaga á sunnudögum en þá tjalda kokkar staðarins öllu til eftir hádegi á sunnudögum og grilla úrvals rétta á stóra útigrillinum úti í garð. Verð á mann er aðeins 13,80 evrur. Kíkið á myndir af staðnum hér
Staðurinn er staðsettur í Torreviejaborg eins og áður segir en heimilisfang staðarins er:
Avda. Urbano Arregui 78. 03185- Torrevieja
Espana
Sjá má nánar staðsetninguna með því að smella hér.
Borðapantanir eru í síma 0034-965706454
Kíkið endilega á heimasíður Caruso og smellið á linkana hér að neðan.
Linkur 1
Linkur 2
|