Í lok ágúst 2009 opnaði Íslendingabar í Cabo Roig hverfinu sem ber heitið "Mangobar" og hefur staðurinn algjörlega slegið í gegn að undanförnu. Staðurinn hefur fengið það orð á sig að bjóða upp á frábæran mat og nefna má alvöru hamborgar með bernaise sósu - fjölbreytta fiskirétti og frábærar steikur og aðra ljúffenga rétti. Einnig hefur staðurinn fengið nokkra umfjöllun í staðarblöðum á svæðinu þar sem maturinn er dásamaður en eigendur staðarins hafa einnig náð að höfða til Íslendingana á svæðinu en sem dæmi má nefna að alla sunnudaga er boðið upp á "schnitzel" með íslensku rauðkáli fyrir aðeins 5 evrur.
Staðurinn hefur einnig boðið upp á lifandi tónlist nokkra daga vikunnar og nefna má að allir fimmtudagar eru blúskvöld og hafa þau þau kvöld einnig slegið í gegn.
Framundan er skötuveisla á Þorláksmessu og heimilisleg jólastemmning á aðfangasag og jóladag þar sem í boði verður íslenskur jólamatur. Símanúmer staðarins er 0034-966188183