|
Í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í sjónvarps- og ýmsum tæknimálum á Spáni getum við nú boðið upp á Ríkissjónvarpið (RÚV), Rás 1 og Rás 2 beint í sjónvarpið á Spáni. Íslenskir fasteignaeigendur hafa hér einstakt tækifæri til að geta fylgst með íslensku sjónvarpi á Spáni og það án nokkurra vandkvæða. Setja þarf upp ákveðinn staðalbúnað í hvert hús og greiða ákveðinn stofnkostnað en ekki verða fastar mánaðar áskriftargreiðslur.
Þessi búnaður er:
Gervihnattadiskur
Kaplar
Veggfestingar
Móttakari
Fjarstýring
Þess skal geta að ef fólk hefur gervihnattadisk og annan búnað nú þegar í eignum sínum þá væri jafnvel unnt að notast við hann að hluta til en það þarf alltaf að setja upp nýjan móttakara framan á diskinn og skipta um kort í móttakaranum sem er inn í stofu.

Pakki 1 - eingöngu RÚV
Heildarverð á búnaði og vinnu við uppsetningu er 650 evrur og engar mánaðarlegar áskriftargreiðslur eftir það.
Pakki 2 - eingöngu RÚV og fjöldinn allur ef erlendum frístöðvum
Heildarverð á búnaði og vinnu við uppsetningu er 690 evrur og engar mánaðarlegar áskriftargreiðslur eftir það.
Í þessum pakka er ekki eingöngu íslenska Ríkissjónvarpið sem næst í gegnum þennan disk heldur eru fjöldinn allur af öðrum frístöðvum eða í kringum 150 stöðvar. Má þar nefna:
CNN - BBCnews - Euronews - Fox movies - MBC stöðvarnar - JSC Sport - Space toon ofl ofl.
Pakki 3 - Rúv og sportpakkinn
Í þessum pakka er sami RÚV búnaður settur upp og taldur er hér upp í pakka 1 og 2 nema hvað bætt er við minni disk og eina korti í móttókarann sem gerir notandanum kleift að fylgjast með sportinu. Í raun eru þessir 2 diskar stilltir inn á 4 hnettir og með því er unnt að nálgast allar útsendingar frá enska boltann (Premier League) og Meistaradeildinni (Champions League) o.sfr.v. Fyrir sportpakkann þarf að greiða fast mánaðarlegt áskriftargjald. Heildarverð á búnaði og vinnu við uppsetningu á pakka 3 er annars 990 evrur
Pakki 4 - "Mini pack"
Settur upp diskur og allur búnaður til að nálgast opnar rásir (erlendar rásir - ekki RÚV). Heildarverð með uppsetningu eru 395 evrur og ekkert áskriftargjald. Hentar vel fyrir þá sem vilja hafa einhverjar sjónvarpsrásir í húsum sínum t.d. ef eignin er leigð mikið út.
Pakki 5 - SKY móttökubúnaður
Settur er upp móttökubúnaður fyrir SKY í gegnum gervihnött og þar með geta íslenskir fasteignaeigendur á Spáni ferðast með "SKY-kortið" frá Íslandi til Spánar. Hentar vel fyrir þá sem eru með SKY pakkann á Íslandi og þurfa því aðeins að taka kortið með sér í húsið sitt á Spáni. Verð á búnaði og uppsetningu um 855 - 895 evrur.
Hvað er betra að skella sér heim í sófann eftir strandferð eða golfhring dagsins og fylgjast með kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins eða að leyfa krökkunum að fylgjast með íslensku barnaefni. Vinsamlegast hafið samband í gegnum info@costablanca.is til að nálgast frekari upplýsingar og bóka uppsetningu.
|